Félagsfræði 103
Ætla að eignast mér prófið
Ætla að eignast mér prófið
Fichier Détails
Cartes-fiches | 150 |
---|---|
Langue | English |
Catégorie | Physique |
Niveau | École primaire |
Crée / Actualisé | 08.12.2016 / 15.05.2017 |
Lien de web |
https://card2brain.ch/box/felagsfri_103
|
Intégrer |
<iframe src="https://card2brain.ch/box/felagsfri_103/embed" width="780" height="150" scrolling="no" frameborder="0"></iframe>
|
Ef mig langaði að kanna viðhorf fíkniefnaneytenda til lögreglu og fíkniefnalöggjafar væri skynsamlegast fyrir mig að nota rannsóknaraðferð sem kallast...
Veldu eitt:
a. Tilraun
b. Skráðar heimildir (míkró)
c. Skráðar heimildir (makró)
d. Vettvangsrannsókn
Vettvangsrannsókn
Durkheim taldi að ríkir mótmælendur sem voru karlar, bjuggu í borgum og voru ógiftir ættu eitthvað sameiginlegt sem útskýrði háa sjálfsvígstíðni á meðal þeirra. Hvað var það sem Durkheim taldi að þeir ættu sameiginlegt?
Veldu eitt:
a. Ójöfn félagsleg tengsl við aðra
b. Breytileg félagsleg tengsl við aðra
c. Háð félagsleg tengsl við aðra
d. Óháð félagsleg tengsl við aðra
e. Misjöfn félagsleg tengsl við aðra
f. Veik félagsleg tengsl við aðra
g. Sterk félagsleg tengsl við aðra
Veik félagsleg tengsl við aðra
Hvað er rangt um kenningu og tilgátu (eitt rangt)
Veldu eitt:
a. Tilgáta er sett fram á undan kenningu í kerfisbundinni rannsókn
b. Kenning er oft byggð á mörgum tilgátum
c. Kenning tengist tilgátu oftast með óljósum hætti ef fylgni er sterk
d. Tilgáta er fullyrðing um orsakasamhengi en kenning er byggð á tilgátum sem búið er að sanna
Kenning tengist tilgátu oftast með óljósum hætti ef fylgni er sterk
Hvað gerði Durkheim til að prófa rannsóknir sínar enn frekar ?
Veldu eitt:
a. Skoðaði gifta karlmenn sem áttu börn og bar þá saman við gifta karlmenn sem ekki áttu börn.
b. Skoðaði tölur milli ólíkra stétta og bar þær saman.
c. Skoðaði ungt fólk og bar það saman við gamalt fólk
d. Skoðaði gifta karlmenn og bar þá saman við ógifta karlmenn
e. Skoðaði ríka og bar þá saman við fátæka
Skoðaði gifta karlmenn sem áttu börn og bar þá saman við gifta karlmenn sem ekki áttu börn.
Þegar laun kvenna og karla eru borin saman væri réttast að bera saman
Veldu eitt:
a. Heildarlaun
b. Meðaltímakaup
c. BSRB heildarlaun
d. Atvinnutekjur
Meðaltímakaup
Hvað er ekki dæmi um rétta niðurstöðu tilgátna sem Durkheim setti fram í kenningu sinni um sjálfsvíg? (eitt rangt)
Veldu eitt:
a. Þeir sem búa í þéttbýli eru líklegri til að fremja sjálfsvíg en þeir sem búa í dreifbýli
b. Konur eru ólíklegri til að fremja sjálfsvíg en karlar
c. Þeir sem eru ríkir eru ólíklegri til að fremja sjálfsvíg en fátækir
d. Þeir sem búa í sveit eru ólíklegri til að fremja sjálfsvíg en þeir sem búa í borg
e. Þeir sem eru giftir eru ólíklegri til að fremja sjálfsvíg en þeir sem eru einhleypir
f. Þeir sem eru mótmælendur eru líklegri til að fremja sjálfsvíg en gyðingar
Þeir sem eru ríkir eru ólíklegri til að fremja sjálfsvíg en fátækir
Hagstofan, Þjóðskrá, Data market, FBI eru dæmi um apila sem við myndum leita til ef við ætluðum að vinna rannsókn sem væri byggð á...
Veldu eitt:
a. Vettvangsrannsóknum
b. Skráðum heimildum (míkró)
c. Skráðum heimildum (makró)
d. Tilraunum
e. Könnunum
Skráðum heimildum (makró)
Hvað leiddu fyrstu rannsóknir Durkheims ekki í ljós? (eitt rangt)
Veldu eitt:
a. Að kaþólikkar væru ólíklegri til að fremja sjálfsvíg en mótmælendur.
b. Að þeir sem voru geðveikir væru líklegri til að fremja sjálfsvíg en þeir sem voru andlega heilbrigðir
c. Að þeir sem bjuggu í sveit væru ólíklegri til að fremja sjálfsvíg en þeir sem bjuggu í borg
d. Að þeir sem væru ríkir væru líklegri til að fremja sjálfsvíg en þeir sem væru fátækir
e. Að þeir sem væri giftir væru ólíklegri til að fremja sjálfsvíg en þeir sem væri ógiftir
Að þeir sem voru geðveikir væru líklegri til að fremja sjálfsvíg en þeir sem voru andlega heilbrigðir
Fréttir veita oft áhugaverða mynd af veruleikanum en ekki endilega rétta vegna þess að:
Veldu eitt:
a. Allt er rétt
b. Fréttamenn gera sjaldan tölfræðilega greiningu á viðfangsefninu
c. Fréttamenn draga það út sem er áhugavert fyrir lesandann.
d. Fréttamenn skoða sjaldan gögn nákvæmlega.
Allt er rétt
Frumbreyta er breyta sem:
Veldu eitt:
a. Verður fyrir áhrifum af annari breytu.
b. Hefur áhrif á aðra breytu.
c. Verður fyrir áhrifum af þýði
d. Verður fyrir áhrifum af Tabula Rasa
e. Er hlutlaus gagnvart öðrum breytum
Hefur áhrif á aðra breytu.
Stuðningsmenn hvaða knattspyrnuliðs gerðust sekir um kynþáttafordóma í París í febrúar 2015?
Veldu eitt:
a. Liverpool
b. Chelsea
c. Arsenal
d. Manchester City
e. Everton
Chelsea
Í rannsókn Goldfarb (1945) bar hann saman tvo hópa af börnum eftir því hvort þau dvöldust á stofnunum fyrstu 2 ár ævinnar. Hve mörg börn voru í hvorum hópnum?
Veldu eitt:
a. 30
b. 20
c. 10
d. 40
40
Hvernig er hægt að draga úr eða uppræta fordóma? (eitt rangt)
Veldu eitt:
a. Setja áfengisbann
b. Viðhorfsbreyting
c. Efnahagsþvinganir
d. Auka samskipti á milli hópa
e. Baráttusamtök
f. Lagasetning
Setja áfengisbann
Neikvæðar hugmyndir sem dregnar hafa verið upp af íslenskum karlmönnum sem eiga asískar konur eru dæmi um fordóma. Hvaða einstaklingur sem tekin var fyrir í námskeiðinu sýndi af sér slíka tilburði?
Veldu eitt:
a. Daníel Ólafsson
b. Agnar Bragi Óttarsson
c. Bjarnfreður Geirsdóttir
d. Georg Bjarnfreðarson
e. Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Georg Bjarnfreðarson
Hvað er ekki einkennandi fyrir raunverulega íslenska menningu í dag?
Veldu eitt:
a. Áfengisneysla
b. Gallabuxur
c. Umskurður
d. Heilsurækt
e. Pítsustaðir
Umskurður
Ef við ætluðum að auglýsa höfuðverkjartöflur með myndasyrpu í Norður Afríku væri mikilvægast að...
Veldu eitt:
a. Taka tillit til ritmenningar sem kann að vera mismunandi eftir menningarheimum
b. Taka tillit til stöðu og kynhlutverka sem kunna að vera mismunandi eftir menningarheimum
c. Taka tillit til tákna sem kunna að vera mismunandi eftir menningarheimum
d. Taka tillit til stöðu og hlutverkaskipanna sem kunna að vera mismunandi eftir menningarheimum
aka tillit til ritmenningar sem kann að vera mismunandi eftir menningarheimum
Hvaða ár voru þjóðarmorðin í Rúanda?
Veldu eitt:
a. 1980
b. 1972
c. 1994
d. 2002
e. 2008
1994
Hvaða atriði hefur ekki átt þátt í nútímavæðingu og stuðlað að fjölbreyttari og breytri menningu á Íslandi?
Veldu eitt:
a. Þjóðernishyggja
b. Upplýsingamiðlun
c. Þjóðflutningar
d. Tæknivæðing
Þjóðernishyggja
Hvaða skelfilegi atburður í mannkynsögunni átti sér stað á árunum 1941 til 1945?
Veldu eitt:
a. Fyrri heimstyrjöldin
b. Kaldastríðið
c. Fjöldamorðin í Rúanda
d. Helförin
Helförin
Ljóskur eru heimskar eða hommar hafa mikið innsæi gæti verið dæmi um...
Veldu eitt:
a. Hámenningu
b. Staðamyndir
c. Huglæga menningu
d. Frávarp
e. Tros
Staðamyndir
Vinur þinn/vinkona þín hefur skoðanir. Hún hefur meðal annars bent á að svartir fái að meðaltali lægra á greindarprófum, arabar séu hryðjuverkamenn, svartir karlar hafi misnotað hvítar konur á fyrir tíma þrælastríðsins í Bandaríkjunum, finnst íslenskir karlar sem eiga asískar konur vera glataðir og að Hitler hafi verið fínn gaur. Vinkona þín er haldin....
Veldu eitt:
a. Geðhvörfum
b. Fordómum
c. Ofskynjunum
d. Geðhrifum
e. Skoðanatruflunum
Fordómum
Hvað er átt við með mongolidar og negroidar?
Veldu eitt:
a. Allt er rétt
b. Íbúa Ástralíu og Kyrrahafseyja
c. Tiltekna flokkun í kynþætti á síðustu öld
d. Araba og Indverja
Tiltekna flokkun í kynþætti á síðustu öld
Hvað er SÍST einkennandi fyrir íslenska menningu í dag?
Veldu eitt:
a. Gallabuxur
b. Fordómar
c. Snjallasímar
d. Heilsurækt
e. Skyndibiti
Fordómar
Þegar heim var komið magnaðist fjandskapur afans í garð barnsins úr öllu hófi. Til að draga úr reiði hans flutti móðir hennar hana upp í risherbergi. Þar naut hún lítillar sem engrar athygli og fékk aðeins smádreitil af mjólk af og til, samt nægjanlegan til að halda í henni líftórunni. Við þessar aðstæður bjó hún í fimm löng ár án samskipta við aðrar mannverur. Þegar hún fannst var hún kraftlaus og máttfarin, ófær um að hlæja, brosa, tala né sýna reiði. Hvað hét stúlkan?
Veldu eitt:
a. Anna
b. Sandra
c. Jody
d. Silvia
e. Sarah
Anna
Stundum keyra 50 manns framhjá fólki í vandræðum. Hvað er að gerast?
Veldu eitt:
a. Frávarp (shed)
b. Hugrænt misræmi (cognitive dissonance)
c. Afskiptaleysi viðstaddra (bystander effect)
d. Fylgispekt (conformity)
Afskiptaleysi viðstaddra (bystander effect)
Siðir, venjur og trú sem ekki er áþreyfanlegt kallast...
Veldu eitt:
a. Frumstæð menning
b. Huglæg menning
c. Hlutlæg menning
d. Mótuð menning
e. Afstæð menning
Huglæg menning
Hvaða þjóðþekkti Íslendingur lýsit grófu ofbeldi sem hann segist hafa orðið vitni að á heimavistaskólanum að Núpi í Dýrafirði.
Veldu eitt:
a. Jón Gnarr
b. Dagur B. Eggertsson
c. Stefán Hilmarsson
d. Logi Bergmann Eiðson
e. Baltasar Kormákur
Jón Gnarr
Hann sló mig niður í ísinn þegar ég ætlaði að berja hann með kylfunni. Við skulum fara og hefna hans og hérna læt ég þig fá sverð til verksins. Þetta er dæmi um..
Veldu eitt:
a. Víkingamenningu
b. Þjóðmenningu
c. Vestræna menningu
d. Hámenningu
e. Efnislega menningu
Víkingamenningu
Hvaða þjóðþekkti Íslendingur var á unglingaheimilinu Núpi í Dýrafirði frá 1981-1983.
Veldu eitt:
a. Jón Gnarr
b. Pétur Jóhann Sigfússon
c. Ólafur Darri Ólafsson
d. Sigurjón Kjartanson
e. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
f. Stefán Hilmarsson
g. Páll Óskar Hjálmtýsson
h. Gunnar Nelson
Jón Gnarr
Hvernig drap Egill Grím?
Veldu eitt:
a. Hjó hann í höfuðið með exi
b. Stakk hann í brjóstið með sverði
c. Hrinti honum niður af bjargi
d. Skaut hann í höfuðið með boga og ör
Hjó hann í höfuðið með exi
Á þeim tíma sem Vesturlandabúar flokkuðu þjóðir í kynþætti voru Afríkubúar kallaðir negróídar og Evrópubúar kallaðir Kaukasoidar. Hvað voru Indjánar og austur asíubúar kallaðir?
Veldu eitt:
a. Savanidar
b. Mongolidar
c. Gamboidar
d. Concordidar
e. Vasanidar
Mongolidar
Skilgreining á menningu:
„Með menningu er átt við allar hugmyndirnar, reglurnar, viðmiðin, gildin og táknin sem sérhver einstaklingur fær í arf frá undangengnum kynslóðum og hann reynir að yfirfæra á komandi kynslóð, oft eitthvað breyttu" (eitt rangt)
Hvað af eftirfarandi fullyrðingum passar ekki við skilgreininguna?
Veldu eitt:
a. Hún er komin frá mannfræðingnum Arne Martin Klausen
b. Með skilgreiningunni er verið að segja að maðurinn lærir menningu þess samfélags sem hann elst upp í.
c. Með skilgreiningunni er verið að segja að munur milli hópa sé meðfæddur
d. Með skilgreiningunni er verið að segja að menning sé ekki líffræðilega arfbundin
Með skilgreiningunni er verið að segja að munur milli hópa sé meðfæddur
Neikvæðar hugmyndir sem dregnar hafa verið upp af íslenskum karlmönnum sem eiga asískar konur eru dæmi um
Veldu eitt:
a. Stöðlun
b. Staðalmyndir
c. Staðalfordóma
d. Staðalfrávik
Staðalmyndir
Í áfanganum var fjallað um eitt menningalegt atriði sem var svörtum í óhag í samanburði við hvíta í Bandaríkjunum vegna menningalegra þátta sem skekktu mælingar. Hvaða atriði var það?
Veldu eitt:
a. Greindarpróf
b. Mælingar á áhuga
c. Hugmyndafræðilegar mælingar
d. Þolpróf
e. Mælingar á heilsu
Greindarpróf
Dæmisögurnar og rannsóknirnar á bls 88-95 eiga að vera tilraun höfundar til að lýsa íslenskri menningu. Eftir lestur þeirra getum við verið viss um að..
Veldu eitt:
a. Íslendingar séu ókurteisir
b. Íslendingar séu mjög drykkfeldir
c. Mikið sé um kjaftagang í íslenskri menningu
d. Erfitt sé að greina íslenska menningu og umfjöllunin gefi ekki endilega rétta mynd af henni
e. Íslendingar séu feimnir og vilji vera útaf fyrir sig
f. Íslenskum karlmönnum þyki gaman að rífast og slást
g. Íslendingar séu ekki umhyggjusamir
h. Íslendingar eigi fá vini og treysta á fjölskylduna
i. Að um sé að ræða góða og lýsandi umfjöllun um íslenska menningu í dag
j. Menning Íslendinga sé algjör lágmenning
Erfitt sé að greina íslenska menningu og umfjöllunin gefi ekki endilega rétta mynd af henni
Á nokkrum vikum árið 1994 höfðu um 800.000 Einstaklingar af Tutsi bakgrunni verið myrtir. Hvaða atburð er átt við?
Veldu eitt:
a. Helförina
b. Fjöldamorðin í Rúanda
c. Upphaf kaldastríðsins
d. Fjöldamorðin í Sýrlandi
Fjöldamorðin í Rúanda
Hvaða hópur er ekki einn þeirra sem voru myrtir á kerfisbundinn hátt í Helförinni (1941-1945)
Veldu eitt:
a. Gyðingar
b. Þroskaheftir
c. Samkynhneigðir
d. Kommúnistar
e. Svartir
f. Aríar
Aríar
Hvaða þáttur/þættir urðu til þess að menn hættu að nota kynþáttahugtakið í rannsóknum? (eitt rangt)
Veldu eitt:
a. Rannsóknir sýndu að aðeins mjög lítill hluti af erfðaefnum (genum) stjórnuðu útliti
b. Blöndun kynþátta
c. Munurinn á milli einstaklinga innan kynþátta var oft meiri en á milli þeirra
d. Rannsóknir sýndu að ekkert af erfðum tengdist kynþætti
Rannsóknir sýndu að ekkert af erfðum tengdist kynþætti
Hvaða einstaklingur var sérstaklega tekin fyrir og notaður til að útskýra slæm áhrif fordóma
Veldu eitt:
a. Adolf Hitler
b. Gordon Brown
c. Emile Durkheim
d. David Cameron
e. Ford-Ómar Ragnarsson
f. Levis Strauss
g. Ómar Ragnarsson
h. Hugh Grant
Adolf Hitler
Hvað er átt við með menningarkima?
Veldu eitt:
a. Hópur fólks sem hagar sér að öllu leiti öðruvísi en meirihluti íbúa í samfélaginu
b. Hópur fólks sem er ofbeldishneigðari en aðrir í samfélaginu
c. Hópur fólks sem fer aldrei eftir viðmiðum og gildum samfélagsins
d. Hópur fólks sem kemur illa fram við aðra meðlimi samfélagsins
e. Hópur fólks sem hafa búið sér til eigin viðmið og gildi sem eru ólík ríkjandi viðmiðum og gildum í samfélaginu
f. Hópur fólk sem lítur á eigin menningu sem hina einu réttu
g. Hópur fólks sem deilir sömu hugmyndum og aðrir í samfélaginu
Hópur fólks sem hafa búið sér til eigin viðmið og gildi sem eru ólík ríkjandi viðmiðum og gildum í samfélaginu