Sálfræði 103
Druken die taumen
Druken die taumen
-
- 1 / 71
-
Lernkarten
Maslow
Bandarískur sálfræðingur og forvígismaður. Hann fylgdi mannúðarsálfræði
Þarfapýramídi Maslow
Neðst eru grunnþarfir mannsins og eftir því sem ofar dregur því verða þarfirnar mannlegri Sjálfsbirting-virðing-ást og umhyggja-öryggi-líkamlegar þarfir
Hvað er sjálfsbirting?
Æðsta markmið mannsins í þarfapýramídanum. Meðfæddur hæfileiki fólks til að þroska hæfileika sína til fulls.
Rogers
Bandarískur sálfræðingur og forvígismaður. Hann fylgdi mannúðarsálfræði
Hvernig breytti Rogers viðhorfum í sambandi við meðferð?
Hann kallaði fólk ekki sjúklinga heldur skjólstæðinga. Hann notaði hópmeðferðir
Að hvaða leyti var meðferð Rogers byltingarkennd?
Hann lét skjólstæðinginn stjórna ferðinni, hann notaði ekki sjúkdómsheiti og fór að nota hópameðferðir.
Hvað gerist ef sjálf og fyrirmyndarsjálf eru ólík? Samkvæmt Rogers
Þá verður maður óhamingjusamur eða jafnvel veikur bæði andlega og líkamlega.
Hvað hafa óraunhæf markmið með geðheilsu að segja samkvæmt Rogers?
Fólk skapar sér áðstæður sem munu valda vonbrigðum og þá líður þeim eins og þau hafi ekki gert sitt besta eða staðið undir væntingum og það leiðir til minnimáttarkenndar.
Samhygðarhópar
Þegar fólk sem hefur lent í svipuðum aðstæðum og áföllum geta hjálpað hvort öðru
Hvað er markmið hópmeðferðar samkvæmt Rogers?
Að fá fólk til þess að læra að hjálpa hvort öðru
Hvert er aðalinntak mannúðarsálfræðinnar?
Frjáls vilji og það er meðfætt hjá manninum að vaxa og þroskast og ná sjálfsstyrkingu.
Hvernig líkja hugfræðingar huganum við tölvu?
Heilinn er eins og harði diskurinn og hugsunin eins og forritin. Heilinn er eins og langtímaminnið en hugsunin eins og skammtímaminnið.
Hvað er þróunarsálfræði og gefðu dæmi um rannsóknarefni hennar.
Leitast við að skýra hegðun og hugsun út frá þróunarkenningu Darwins. Dæmi um rannsóknarefni er afbrýðisemi og hvernig við veljum okkur maka.
Hvað er fjölgunarárangur? og hvernig tengist það sálfræði?
Það er innbyggt í okkur að vilja fjölga okkur, að breiða út erfðaefnið okkar eða vera áfram til. Eins og t.d. þegar það er skortur eða kreppa þá eignumst við fleiri börn eða þá að karlmenn/konur velja maka sinn út frá vexti, t.d. karlmenn vilja konur sem
Hvað er líffræðileg sálfræði?
Leitast við að skýra eða rannsaka hvernig líffræðileg bygging og erfðamengi hafa áhrif á hegðun, hugsun og tilfinningar
Hvernig útskýra atferlissinnar ýgi?
Þeir segja að ýgi sé lært.
Hvernig útskýra sálgreinendur ýgi?
Til eru tvær hvatir sem við fæðumst með: kynhvöt og árásarhvöt.
Hvernig útskýrir þróunarsálfræðin ýgi?
Manneskjan hefur bara lært þetta í gegnum tíðina, þetta væri bara aðlögun.
Hvað er úrvalsstefna?
Það besta er valið úr stefnunum, það sem hentar hverju sinni.
Hverjar voru Calkins, Ladd-Franklin og Washburn?
Þetta eru allt konur. Dæmi um það afhverju við erum ekki að læra um konur í gegnum sálfræðinna. Þær fengu ekki sömu réttindi og karlmenn, til dæmis fengu þær ekki gráður eftir að þær voru búnar að útskrifast og sumar fengu ekki að fara í skóla.
Hvað gera þeir sem vinna við Líffræðilega sálfræði
Þeir rannsaka heilann í lifandi og heilbrigðu fólki til þess að reyna að skýra hvernig líffræðileg bygging og erfðamengi hafa áhrif á hugsun, hegðun og tilfinningar. (t.d. erfðarannsóknir, rannsóknir á taugakerfinu, hormónum, skynjun og innkirtlum). Fræði
Hvað gera þeir sem vinna við Tilraunasálfræði
Rannsóknir á sálfræðilegum grundvallaratriðum eins og hvað orsakar hegðun, hugsun og tilfinningar.Fræðileg sálfræði.
Hvað gera þeir sem vinna við Klíníska sálfræði
Sér um meðferð á fólki, sálfræðingarnir læra allt um sjúkdóma og hvernig á að lækna þá, hagnýt sálfræðigrein.
Hvað gera þeir sem vinna við Ráðgefandi sálfræði
Aðstoðar fólk við að leysa úr vandamálum daglegs lífs. Styður fólk í gegnum áföll eða erfiðleika æviskeiðsins. Hagnýt sálfræði.
Hvað gera þeir sem vinna við Skólasálfræði
Rannsaka námsferlið frá mismunandi sjónarhornum, allt frá kennsluaðferðum til námsörðugleika. Hjálpa börnum og unglingum að vinna á tilfinningalegum vandamálum í skólakerfinu. Hagnýt sálfræði
Hvað gera þeir sem vinna við Persónuleikasálfræði
Leita af einkennum sem gera hverja manneskju einstaka. Þeir rannsaka hvað er ólíkt með fólki eins og kvíða, þunglyndi, sjálfstraust, þörf fyrir árangur og árásarhneigð. Fræðileg sálfræði.
Hvað gera þeir sem vinna við Félagssálfræði
Rannsaka hvernig fólk hefur áhrif á hvort annað. Fræðileg sálfræði.
Hvað gera þeir sem vinna við Vinnusálfræði
Fást við líðan fólks á vinnustað og framleiðni á vinnustað. Sinna starfsmannahaldi og bregðast við sálfræðilegum vandamálum á vinnustaðnum. Fræðileg
Hvað gera þeir sem vinna við Réttarsálfræði
Réttarsálfræði: Fást við afbrotamál og réttarhöld. Fræðileg
Hvað gera þeir sem vinna við Dulsálfræði
Dulsálfræði: Rannsaka ónáttúrulega hluti eins og sýnir á dánarbeði, hugsanaflutning og hvort hægt sé að hreyfa hluti með hugarorku, drauga o.fl. Fræðileg sálfræðigrein.
Hverjir eru 5 grundvallarþættirnir eða álitamál sem koma inn á öll svið sálfræðinnar?
Manneskjan-aðstæður, erfðir-umhverfi, stöðugleiki-breytingar, margbreytileiki, líkami-sál