Sálfræði 103

Druken die taumen

Druken die taumen


G. J.
This flashcard set introduces primary school students to the fundamental concepts of psychology, covering various branches such as clinical, educational, and social psychology. It explores key figures like Freud, Watson, and Rogers, and their contributions to understanding human behavior, emotions, and mental processes. The flashcards are designed to help young learners grasp essential psychological theories and applications, making complex ideas accessible and engaging for a young audience.
Flashcards
71
Students
1
Language
English
Category
Biology
Created / Updated
15.11.2016 / 15.11.2016

Flashcards

Maslow

Bandarískur sálfræðingur og forvígismaður. Hann fylgdi mannúðarsálfræði

Þarfapýramídi Maslow

Neðst eru grunnþarfir mannsins og eftir því sem ofar dregur því verða þarfirnar mannlegri Sjálfsbirting-virðing-ást og umhyggja-öryggi-líkamlegar þarfir

Hvað er sjálfsbirting?

Æðsta markmið mannsins í þarfapýramídanum. Meðfæddur hæfileiki fólks til að þroska hæfileika sína til fulls.

Rogers

Bandarískur sálfræðingur og forvígismaður. Hann fylgdi mannúðarsálfræði

Hvernig breytti Rogers viðhorfum í sambandi við meðferð?

Hann kallaði fólk ekki sjúklinga heldur skjólstæðinga. Hann notaði hópmeðferðir

Að hvaða leyti var meðferð Rogers byltingarkennd?

Hann lét skjólstæðinginn stjórna ferðinni, hann notaði ekki sjúkdómsheiti og fór að nota hópameðferðir.

Hvað gerist ef sjálf og fyrirmyndarsjálf eru ólík? Samkvæmt Rogers

Þá verður maður óhamingjusamur eða jafnvel veikur bæði andlega og líkamlega.

Hvað hafa óraunhæf markmið með geðheilsu að segja samkvæmt Rogers?

Fólk skapar sér áðstæður sem munu valda vonbrigðum og þá líður þeim eins og þau hafi ekki gert sitt besta eða staðið undir væntingum og það leiðir til minnimáttarkenndar. 

Samhygðarhópar

Þegar fólk sem hefur lent í svipuðum aðstæðum og áföllum geta hjálpað hvort öðru 

Hvað er markmið hópmeðferðar samkvæmt Rogers?

 

 

Að fá fólk til þess að læra að hjálpa hvort öðru

Hvert er aðalinntak mannúðarsálfræðinnar?

Frjáls vilji og það er meðfætt hjá manninum að vaxa og þroskast og ná sjálfsstyrkingu. 

Hvernig líkja hugfræðingar huganum við tölvu?

Heilinn er eins og harði diskurinn og hugsunin eins og forritin. Heilinn er eins og langtímaminnið en hugsunin eins og skammtímaminnið. 

Hvað er þróunarsálfræði og gefðu dæmi um rannsóknarefni hennar.

Leitast við að skýra hegðun og hugsun út frá þróunarkenningu Darwins. Dæmi um rannsóknarefni er afbrýðisemi og hvernig við veljum okkur maka.

Hvað er fjölgunarárangur? og hvernig tengist það sálfræði?

Það er innbyggt í okkur að vilja fjölga okkur, að breiða út erfðaefnið okkar eða vera áfram til. Eins og t.d. þegar það er skortur eða kreppa þá eignumst við fleiri börn eða þá að karlmenn/konur velja maka sinn út frá vexti, t.d. karlmenn vilja konur sem

Hvað er líffræðileg sálfræði?

Leitast við að skýra eða rannsaka hvernig líffræðileg bygging og erfðamengi hafa áhrif á hegðun, hugsun og tilfinningar

Hvernig útskýra atferlissinnar ýgi?

Þeir segja að ýgi sé lært.

Hvernig útskýra sálgreinendur ýgi?

Til eru tvær hvatir sem við fæðumst með: kynhvöt og árásarhvöt.

Hvernig útskýrir þróunarsálfræðin ýgi?

Manneskjan hefur bara lært þetta í gegnum tíðina, þetta væri bara aðlögun.

Hvað er úrvalsstefna?

Það besta er valið úr stefnunum, það sem hentar hverju sinni.

Hverjar voru Calkins, Ladd-Franklin og Washburn?

Þetta eru allt konur. Dæmi um það afhverju við erum ekki að læra um konur í gegnum sálfræðinna. Þær fengu ekki sömu réttindi og karlmenn, til dæmis fengu þær ekki gráður eftir að þær voru búnar að útskrifast og sumar fengu ekki að fara í skóla.

Hvað gera þeir sem vinna við Líffræðilega sálfræði

Þeir rannsaka heilann í lifandi og heilbrigðu fólki til þess að reyna að skýra hvernig líffræðileg bygging og erfðamengi hafa áhrif á hugsun, hegðun og tilfinningar. (t.d. erfðarannsóknir, rannsóknir á taugakerfinu, hormónum, skynjun og innkirtlum). Fræði

Hvað gera þeir sem vinna við Tilraunasálfræði

Rannsóknir á sálfræðilegum grundvallaratriðum eins og hvað orsakar hegðun, hugsun og tilfinningar.Fræðileg sálfræði. 

Hvað gera þeir sem vinna við Klíníska sálfræði

Sér um meðferð á fólki, sálfræðingarnir læra allt um sjúkdóma og hvernig á að lækna þá, hagnýt sálfræðigrein. 

Hvað gera þeir sem vinna við Ráðgefandi sálfræði

Aðstoðar fólk við að leysa úr vandamálum daglegs lífs. Styður fólk í gegnum áföll eða erfiðleika æviskeiðsins. Hagnýt sálfræði. 

Hvað gera þeir sem vinna við Skólasálfræði

Rannsaka námsferlið frá mismunandi sjónarhornum, allt frá kennsluaðferðum til námsörðugleika. Hjálpa börnum og unglingum að vinna á tilfinningalegum vandamálum í skólakerfinu. Hagnýt sálfræði

Hvað gera þeir sem vinna við Persónuleikasálfræði

Leita af einkennum sem gera hverja manneskju einstaka. Þeir rannsaka hvað er ólíkt með fólki eins og kvíða, þunglyndi, sjálfstraust, þörf fyrir árangur og árásarhneigð. Fræðileg sálfræði. 

Hvað gera þeir sem vinna við Félagssálfræði

Rannsaka hvernig fólk hefur áhrif á hvort annað. Fræðileg sálfræði.

Hvað gera þeir sem vinna við Vinnusálfræði

Fást við líðan fólks á vinnustað og framleiðni á vinnustað. Sinna starfsmannahaldi og bregðast við sálfræðilegum vandamálum á vinnustaðnum. Fræðileg

Hvað gera þeir sem vinna við Réttarsálfræði

Réttarsálfræði: Fást við afbrotamál og réttarhöld. Fræðileg

Hvað gera þeir sem vinna við Dulsálfræði

Dulsálfræði: Rannsaka ónáttúrulega hluti eins og sýnir á dánarbeði, hugsanaflutning og hvort hægt sé að hreyfa hluti með hugarorku, drauga o.fl. Fræðileg sálfræðigrein. 

Hverjir eru 5 grundvallarþættirnir eða álitamál sem koma inn á öll svið sálfræðinnar?

Manneskjan-aðstæður, erfðir-umhverfi, stöðugleiki-breytingar, margbreytileiki, líkami-sál

Study