Félagsfræði 103 partur 2

Mjölva þetta próf

Mjölva þetta próf


G. J.
This flashcard set covers primary school-level psychology topics, focusing on social dynamics, abuse, and societal issues. It explores various forms of abuse, such as psychological, physical, and sexual, and discusses their impacts and causes. The set also delves into societal problems like poverty, unemployment, and the justice system, providing insights into how these issues affect individuals and communities. This flashcard set is beneficial for students and educators seeking to understand and address complex social and psychological challenges.
Flashcards
163
Students
1
Language
English
Category
Psychology
Created / Updated
10.12.2016 / 15.05.2017

Flashcards

Hvað er rangt varðandi fjölskyldur og ættartengsl? (eitt rangt)

Veldu eitt:

a. Rannsóknir á fjölskyldunni hafa verið meira áberandi í félagsfræði en mannfræði 

b. Í flestum löndum Asíu og Afríku er litið á ættina sem máttarstólpa samfélagsins

c. Á Vesturlöndum hefur fjölskyldan misst mörg fyrri hlutverk og hefur minna gildi en áður

d. Ættin skiptir meira máli í óiðnvæddum löndum en iðnvæddum

Rannsóknir á fjölskyldunni hafa verið meira áberandi í félagsfræði en mannfræði

Hvers vegna minnkaði hlutverk fjölskyldunnar/ættarinnar við iðnvæðinguna/hvers vegna er fjölskyldan ekki jafn mikilvæg fyrir einstaklinga samfélagsins í dag en hún var hér áður fyrr? (eitt rangt)

Veldu eitt:

a. Velferðarúrræði og opinberar stofnanir tóku við hlutverki fjölskyldunnar.

b. Ekki var lengur nauðsynlegt fyrir einstaklinginn að treysta á fjölskylduna til að hugsa um sig í veikindum

c. Landbúnaðarsamfélagið og þróun þess gerði það að verkum að stórfjölskyldan hafði minna gildi  

d. Ekki var lengur nauðsynlegt fyrir einstaklinga að treysta á fjölskylduna til að framfleyta sér í ellinni

Landbúnaðarsamfélagið og þróun þess gerði það að verkum að stórfjölskyldan hafði minna gildi

Hverjar eru helstu breytingar á kjarnafjölskyldunni á Íslandi frá árinu 1960 til ársins 2005 samkvæmt Hagstofu Íslands? (eitt rangt)

Veldu eitt:

a. Um 30% Íslendinga voru skráðir sem einstæðingar í skýrslum hagstofunar árið 2005 en 45% voru skráðir sem einstæðingar árið 1960. 

b. Næstum þrisvar sinnum fleiri hjónabönd eru án barna 2005 miðað við árið 1960.

c. Næstum þrisvar sinnum fleiri mæður eru skráðar einar með börn árið 2005 samanborið við árið 1960

Um 30% Íslendinga voru skráðir sem einstæðingar í skýrslum hagstofunar árið 2005 en 45% voru skráðir sem einstæðingar árið 1960.

Hvað er rangt um fjölskylduna sem framleiðslueiningu og neyslueiningu? (eitt rangt)

Veldu eitt:

a. Kjarnafjölskyldan er oftast neyslueining í iðnaðar og upplýsingasamfélögum

b. Þar sem fjölskyldan er neyslueining er flest öll neysla keypt.

c. Fjölskyldan er ennþá framleiðslueining í mörgum óiðnvæddum samfélögum í nútímanum

d. Þegar fjölskyldumeðlimir framleiða sjálfir mat og fatnað er talað um fjölskylduna sem neyslueiningu 

Þegar fjölskyldumeðlimir framleiða sjálfir mat og fatnað er talað um fjölskylduna sem neyslueiningu

Hvað er ekki eitt af hlutverkum fjölskyldunnar? (eitt rangt)

Veldu eitt:

a. Félagsmótun

b. Umönnun

c. Tilfinningatengsl

d. Kynlíf

e. Ást

f. Staðalmyndun 

g. Framleiðsla

Staðalmyndun

Hvað er rangt um fjölskyldur? (eitt rangt)

Veldu eitt:

a. Í dag er minni þörf fyrir tilfiningalega nærveru innan fjölskyldunnar en áður fyrr 

b. Við eigum oftast erfiðara með að tjá tilfinningar okkar utan fjölskyldunnar

c. Innan fjölskyldunnar geta átt sér stað átök þar sem birtist í reiði og yfirgangssemi

d. Innan fjölskyldunnar getum við hvílt okkur og fengið uppfyllt þörfum fyrir umhyggju og öryggi

Í dag er minni þörf fyrir tilfiningalega nærveru innan fjölskyldunnar en áður fyrr

Hvað af þessu er ekki talið einn af mikilvægustu þáttum góðra fjölskyldutengsla (eitt rangt)

Veldu eitt:

a. Vinátta

b. Virðing

c. Jafnrétti

d. Agi 

e. Traust

f. Næmi nærgætni

Agi

Hver af neðangreindum ástæðum er ekki líklegt til að skýra það að konur í vestrænum samfélögum eru ólíklegri til að vera giftar um þrítugt árið 2015 en árið 1980.

Veldu eitt:

a. Karlar eru latari á heimilinu árið 2015 

b. Konur hugsa meira um starfsframa árið 2015

c. Konur eyða meiri tíma til náms árið 2015

d. Konur eiga færri börn árið 2015

Karlar eru latari á heimilinu árið 2015

Hvers vegna er verið að tala um fjölskylduna og fjölskyldugildin í Japan í upphafi kafla sjö sem fjallar um fjölskylduna?

Veldu eitt:

a. Vegna þess að fæðingum í Japan hefur fækkað mikið síðustu 50-60 ár og líklegt er að sú þróun sem þar er spái fyrir um og lýsi þróun í þróuðum löndum 

b. Vegna þess að japanskar konur hafa sífellt orðið ósjálfstæðari og eru Japanir fyrirlitnir á vesturlöndum vegna ójafnréttis sem þar ríkir

c. Vegna þess að fæðingum í Japan hefur fjölgað mikið síðustu 40 ár

d. Vegna þess að japanskar konur hafa sífellt orðið sjálfstæðari, Japanir eru fremstir meðal ríkja Vesturlanda varðandi jafnrétti og líklegra er að konur stjórni fyrirtækjum en karlar í Japan

Vegna þess að fæðingum í Japan hefur fækkað mikið síðustu 50-60 ár og líklegt er að sú þróun sem þar er spái fyrir um og lýsi þróun í þróuðum löndum

Hversu langt er fæðingaorlof á Íslandi árið 2015

Veldu eitt:

a. 15 mánuðir

b. 12 mánuðir

c. 6 mánuðir

d. 3 mánuðir

e. 9 mánuðir 

9 mánuðir

Hvernig skiptist fæðingarorlof á Íslandi í mánuðum?

Veldu eitt:

a. 6 kona og 3 karl

b. 6 karl og 3 kona

c. 9 kona

d. 3 kona, 3 karl og 3 sameiginlegt 

e. 9 karl

3 kona, 3 karl og 3 sameiginlegt

Hvernig má búast við að lýðfræði Íslendinga hafi breyst árið 2035 miðað við þá staðreynd að frjósemi kvenna hafi verið 4,16 árið 1958 en 1,99 árið 2005.

Veldu eitt:

a. Hlutfallslega færri Íslendingar verði í yngri hópum árið 2035 en t.d. árið 1980 

b. Hlutfallslega fleiri Íslendingar verði í yngri hópum árið 2035 en t.d. árið 1980

c. Hlutfallslega færri Íslendingar verði í eldri hópum árið 2035 en árið 1980

d. Fæðingatíðni hefur engin áhrif á lýðfræðiþróun

Hlutfallslega færri Íslendingar verði í yngri hópum árið 2035 en t.d. árið 1980

Latur, krepptur og sjónlaus eru dæmi um

Veldu eitt:

a. Atriði sem skýrð voru betur með orskýringabók Gissurar Hallvarðsonar sem gefin var út árið 1753

b. Orð sem notuð hafa verið til að gera lítið úr ráðandi stéttum í þjóðfélaginu

c. Orð sem hafa verið tekin út úr íslensku orðasafni vegna ofnotkunar 

d. Flokka sem voru notaðir í manntalinu frá árinu 1703 

e. Orð sem notuð voru í íslenska gagnfræðahverinu frá árinu 1783

Flokka sem voru notaðir í manntalinu frá árinu 1703

Dæmi um mannatal sem talið er vera það fyrsta sem nær yfir heila þjóð er...

Veldu eitt:

a. Dansk/íslenska manntalið frá árinu 1791

b. Manntal Ísraelsmanna frá árinu 203 fyrir krist

c. Íslenska manntalið frá árinu 1589

d. Íslenska manntalið frá árinu 1703 

Íslenska manntalið frá árinu 1703

Á hvaða svæði eru hæstar lífslíkur?

Veldu eitt:

a. Eyjaálfu

b. Austur-Evrópu

c. Indlandi

d. S-Ameríku

e. Vestur-Evrópu 

Vestur-Evrópu

Hve hátt hlutfall kvenna var á vinnumarkaði árið 1960?

Veldu eitt:

a. 34,3% 

b. 14,3%

c. 74,3%

d. 94,3%

e. 54,3%

34,3%

Hve hátt hlutfall kvenna var á vinnumarkaði árið 2001?

 

Veldu eitt:

a. 48,9%

b. 78,9% 

c. 68,9%

d. 58,9%

e. 88,9%

78,9%

Hver er ein af helsu ástæðum þess að ungt fólk glímir frekar við andlega sjúkdóma nú en fyrir 50 árum síðan að mati Óttars Guðmundssonar geðlæknis?

Veldu eitt:

a. Sú staðreynd að börn eru meira og minna á stofnunum allan daginn

b. Tilhneiging foreldra til að vilja skapa börnum sínum fullkomlega örugga æsku 

c. Sú staðreynd að börn eru of lítið á stofnunum

d. Aukið álag á börn vegna þess að foreldrar hugsa ekki nógu mikið um að verja þau fyrir hættulegu áreiti í umhverfinu

e. Andlegt álag sem börn þurfa að upplifa vegna hækkandi tíðni eineltis

f. Tilhneiging barna til að ræða ekki nógu oft um áreiti í umhverfinu eins og leiðinlega kennara sem hafa vond áhrif á þau

Tilhneiging foreldra til að vilja skapa börnum sínum fullkomlega örugga æsku

Hvað hét barnsmóðir James Brian Grayson sem hann átti í forsjárdeilu við?

Veldu eitt:

a. Anna Nicole Grayson

b. Anna Nicole Smith

c. Sigrún Bragadóttir

d. Erna Eyjólfsdóttir

e. Sandra Kim Nielsen

Erna Eyjólfsdóttir

Hverjum dæmdu íslenskir dómstólar forræði/forsjá í forræðisdeilu/forsjármáli milli Ernu Eyjólfsdóttur og James Brian Grayson sem kennt er við Sérsveitina?

Veldu eitt:

a. Móðurinni

b. Ömmu og afa móður

c. Föðurnum

d. Ömmu og afa föður

e. Barnaverndaryfirvöldum

Móðurinni

Hvaða frægi leikari kom við sögu í forsjárdeilu Ernu Eyjólfsdóttur og James Brian Grayson?

Veldu eitt:

a. Bruce Willis

b. Shaun Claude Van Damme

c. Reese Witherspoon

d. Arnold Schwarzenegger

e. Sylvester Stallone

Sylvester Stallone

Hvers vegna hefði það lýst hræsni Íslendinga ef þeir hefðu almennt verið á móti Brian Grayson í forsjármáli hans og Ernu Eyjólfsdóttur? 

Veldu eitt:

a. Vegna þess að Íslendingar studdu Soffíu Hansen í sínu máli

b. Vegna þess að Brian vildi bara það besta fyrir börnin

c. Vegna þess að íslendingar voru aðilar að sáttmála sem kenndur er við Haag

d. Vegna þess að Erna var virkur fíkniefnaneytandi

Vegna þess að Íslendingar studdu Soffíu Hansen í sínu máli

Í grein sinni um feðraréttindahreyfingar telur Þórey Guðmundsdóttir að flestir fráskildir feður sem eiga börn...

Veldu eitt:

a. ...séu góðar fyrirmyndir

b. ...séu í mun betri samskiptum við mæður ef þeir gangi í feðraréttindahreyfingar

c. ...misnoti baráttusamtök og lög 

d. ...séu skynsamir ef þeir gangi í hagsmunasamtök

misnoti baráttusamtök og lög

Taktu afstöðu til fullyrðingarinnar:

"Grein Þóreyjar Guðmundsdóttur félagsráðgjafa, handleiðara, fyrverandi sáttamans í forsjárdeilum og prests miðlar hugmyndum sem eru jákvæðar og gagnlegar gagnvart samskiptum foreldra og velferð barna."

Veldu eitt:

a. Nokkuð sammála

b. Nokkuð ósammála

c. Hvorki sammála né ósammála

d. Mjög sammála

e. Mjög ósammála

Mjög ósammála

Hvað er rangt um uppeldi Óttars Guðmundssonar geðlæknis?

Veldu eitt:

a. Barnakennarinn hans var afhjúpaður sem barnaperri

b. Pabbi hans reykti 2-3 pakka af sígarettum á dag

c. Hann var kominn í launaða vinnu 15 ára

d. Hann svaf í rúmi sem málað var með krabbameinsvaldandi blýmálningu

e. Hann fór í feluleik í nýbyggingum og húsagrunnum

Hann var kominn í launaða vinnu 15 ára

Hvað kallar Óttar Guðmundsson geðlæknir þá kynslóð sem nú vex úr grasi?

Veldu eitt:

a. Tæknikynslóðina

b. Öryggiskynslóðina

c. Snjallsímakynslóðina

d. Nútímakynslóðina

Öryggiskynslóðina

Í barnasáttmála Sameinuðuþjóðanna eru allir undir 18 ára aldri skilgreindir sem börn. Hvað er ekki dæmi um uppeldisreglur ríkisins?

Veldu eitt:

a. Reglur um útivistatíma

b. Áfengislöggjöf

c. Lög um næringaþörf 

d. Lög um ökupróf

Lög um næringaþörf

Hvaða skýringar kunna að vera á aukinni tíðni skilnaða í nútímanum  sem kallað hefur verið fjölskyldur í kreppu? (eitt rangt)

Veldu eitt:

a. Mikill fjöldi í borgum og stórum bæjum leiðir m.a. til veikara félagslegs taumhalds

b. Fólk á auðveldara með að hoppa í annað samband í stórum borgum eða bæjum

c. Álag og stresss borgarlífsins samhliða upplausn félagslegra viðmiða

d. Fjölskyldur í nútímanum er oftar haldið saman vegna hagkvæmni frekar en tilfiningaböndum 

e. Hlutverkum fjölskyldunnar hefur fækkað

Fjölskyldur í nútímanum er oftar haldið saman vegna hagkvæmni frekar en tilfiningaböndum

Hvaða staðreynd er röng?

Veldu eitt:

a. Meðalaldur brúða frá árunum 1971-1975 var 24 ár

b. Meðalaldur brúðguma frá árunum 2001-2005 var 25,4 ár 

c. Á meðal ári á Íslandi væri líklegt að fjöldi nýrra hjónabanda væri á bilinu 1300-1700 

d. Löglegur giftingaaldur er 18 ár

e. Í meira en 85% tilfella er um kirkjulegar vígsur að ræða þegar fólk gengur í hjónaband

Meðalaldur brúðguma frá árunum 2001-2005 var 25,4 ár

Hjónabönd eru til í ýmsum myndum víða um heim. Hvað á ekki við um hjónabönd?

Veldu eitt:

a. Í Ástralíu eru ungum kornabörnum stundum ákveðnir eiginmenn

b. Á Borneó ríkir venja að aðeins þeir karlmenn sem hafa drepið annan mann mega ganga í hjónaband

c. Algegnt er að brúðurin sé keypt og er verðið í Norður Síberíu t.d. oft um 100 hreindýr

d. Hjónabönd í einföldum samfélögum eru venjulega viðskipti en lítið hugsað um ást

e. Í Mexíkó ríkir sú trú að aðeins þeir karlmenn sem koma úr efri lögum samfélagsins mega ganga í hjónaband 

Í Mexíkó ríkir sú trú að aðeins þeir karlmenn sem koma úr efri lögum samfélagsins mega ganga í hjónaband

Í hjónaböndum eða sambúð eru formleg og óformleg viðmið. Fjöldin allur af óformlegum viðmiðum er til staðar og eru þau breytileg á milli einstaklinga og para. Þannig gera báðir einstaklingarnir óformlegar væntingar til hvors annars og geta sprottið upp vandamál og deilur ef fólk talar ekki um þess þætti opinskátt eða hefur ekki þann þroska eða umburðarlyndi sem til þarf til að geta búið með öðrum. Hvað af eftirfarandi er dæmi um formleg viðmið í hjónaböndum eða sambúð?

Veldu eitt:

a. Gagnkvæmur trúnaður

b. Aldur parsins (báðir aðilar samt yfir 18 ára)

c. Gagnkvæm framfærsluskylda barna 

d. Gagnkvæmur áhugi á kynlífi

Gagnkvæm framfærsluskylda barna

Ég var að missa vinnuna. Ég veit ekki hvort ég eigi að hata atvinnurekandann eða kenna sjálfum mér um þetta. Ég virðist þurfa að ásaka einhvern eða finna einhvern sökudólg. Ég finn að tilfinningarnar sveiflast upp og niður og stundum græt ég. Ég finn fyrir kvíða og sef lítið sem eykur á kvíðann. Ég þori ekki að hugsa um framtíðina því ótti við óvissuna umlykur tilfinningar mínar. Þetta stig sálrænnar kreppu kallst...

Veldu eitt:

a. Millibilsstig  

b. Viðbragðsstig  

c. Áfall 

d. Aðgerða- og úrvinnslustig 

e. Uppbyggingarstigið 

Viðbragðsstig

Hve há er upphæð einfalds meðlags árið 2016 ?

Veldu eitt:

a. 39.276

b. 16.961

c. 38.134

d. 15.382

e. 29.469 

29.469

Í tölfræðiupplýsingum frá Landshögum (1995-2005) má finna tölfræðilegar upplýsingar um stöðugleika og breytingar í fjölskyldumynstri Íslendinga. Miðað við við heildarfjölda karla og kvenna 18 ára og eldri og börn frá 0-17 ára. Hverjar af eftirfarandi upplýsingum eru ekki hluti af helstu upplýsingum sem koma þar fram? (eitt rangt)

Veldu eitt:

a. Rúmlega helmingi fleiri einhleypar konur með börn voru á Suðurnesjum (12,5%) miðað við á Austurlandi (6,2%) árið 2005.

b. Hlutfall barna sem búa hjá tveimur fullorðunum hefur farið úr 83,8% árð 1995 niður í 76,9% árið 2005 og þar með lækkað um tæp 7%

c. Næstum helmingi líklegra var að börn sem bjuggu í Reykjavík (29,2%) byggju hjá einu foreldri samanborið við börn sem bjuggu á Norðulandi vestra (15,2%).

d. Aðeins 28.0% kvenna 18 ára og eldri sem búa á Suðurnesjum eru einhleypar samanborið við 48,0% karla sem búa í Reykjavík

e. Hæst hlutfall einhleypra kvenna með börn er á Vestfjörðum eða 21% af heildarfjölda kvenna 18 ára og eldri   

Hæst hlutfall einhleypra kvenna með börn er á Vestfjörðum eða 21% af heildarfjölda kvenna 18 ára og eldri

Þegar kemur að því að fólk velur sér maka skipta nokkrir þættir máli í makavali. Hvað þáttur er ekki einn þeirra sem bókin telur sérstaklega mikilvæga?

Veldu eitt:

a. Kynþáttur

b. Menntun

c. Útlit

d. Stétt

e. Trúarbrögð

f. Aldur

g. Stærðfræðigáfa 

Stærðfræðigáfa

Hve hátt hlutfall einstaklinga á aldrinum 30-34 ára voru skráðir einhleypir í þjóðskrá árið 2005?

Veldu eitt:

a. 20%

b. 60%

c. 40% 

d. 10%

40%

Ákveðin skilyrði kunna að standa í vegi fyrir því að einstaklingar geti gift sig. Hvaða atriði er ekki eitt þeirra atriða sem kann að hafa áhrif á það hvort einstaklingar megi gifta sig eða ekki.

 

 

Veldu eitt:

a. Fjárhagsstaða (mátt ekki vera gjaldþrota)

b. Tvíkvæni (ert giftur öðrum)

c. Skyldleiki (mátt ekki giftast ömmu þinni)

d. Aldur (18 ára lágmark)

e. Mægðir (mátt ekki giftast stjúpsystur þinni) 

Mægðir (mátt ekki giftast stjúpsystur þinni)

Hvað á ekki við um piparsveina? (eitt rangt)

Veldu eitt:

a. Eru fyrirlitnir í sumum samfélögum

b. Hjá mörgum þjóðum í Asíu eru piparsveinar við 30 ára aldur þvingaðir til hermennsku 

c. Sums staðar á Indlandi voru þeir flokkaðir með þjófum og glæpamönnum

d. Í Spörtu máttu þeir ekki taka þátt í íþróttum

Hjá mörgum þjóðum í Asíu eru piparsveinar við 30 ára aldur þvingaðir til hermennsku

Hver af eftirfarandi fullyrðingum er röng?

Veldu eitt:

a. Fólk getur hafið óvígða sambúð 18 ára

b. Að búa með fleiri en einum aðila í föstu kynferðislegu sambandi stangast ekki á við hegningarlög 

c. Hið opinbera hefur engin afskipti af því þegar sambúðarfólk slítur sambúð 

d. Þótt sifjaspell sé talið ósiðlegt er ekki hægt að lögsækja einstaklinga fyrir sifjaspell

Þótt sifjaspell sé talið ósiðlegt er ekki hægt að lögsækja einstaklinga fyrir sifjaspell

Hvað er rangt varðandi könnun sem Sigrún Júlíusdóttir gerði á fjölskyldum árið 1995?

Veldu eitt:

a. Þriðja sambúð endist að meðaltali 1,3 ár

b. Fyrsta sambúð endist að meðaltali 7,6 ár

c. Meðallengd óvígðrar sambúðar er að meðaltali 4,1 ár

d. Meðallengd hjónabanda er að meðaltali 19,3 ár 

e. Önnur sambúð endist að meðaltali 4,5 ár

Meðallengd hjónabanda er að meðaltali 19,3 ár

Study